Home Fréttir Í fréttum Eigandi varar við Toppstöðinni: „Alvarleg staða“

Eigandi varar við Toppstöðinni: „Alvarleg staða“

124
0
Eigandi varar við Toppstöðinni: „Alvarleg staða“
Borið hefur á mannaferðum inni í Toppstöðinni eftir eldsvoðann. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Aðsend

Eigandi varar við Toppstöðinni: „Alvarleg staða“

„Það er alvarleg staða í fasteigninni og ekki hollt fyrir nokkurn mann að vera þarna inni vegna hættulegra aðstæðna,“ segir Brynjólfur Þorkell Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Eignabyggðar, sem fer með ráðandi hlut í Toppstöðinni í Elliðaárdal þar sem eldur kom upp innanhúss á mánudag.

Hann vill koma varnaðarorðum til fólks sökum þess að borið hefur á því að brotist hafi verið inn í fasteignina, bæði fyrir og eftir eldsvoðann. Slysahættan er að hans sögn ótvíræð eins og sakir standa.

„Við fengum að skoða fasteignina í gær í fyrsta skipti eftir eldsvoðann með heilbrigðiseftirlitinu og tryggingafélaginu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur metur stöðuna innanhúss alvarlega,“ segir Brynjólfur.

Hér má sjá hvernig er um að litast í kolageymslu sem er gjörónýt. Ljósmynd/Aðsend

Milligólf geti gefið sig

Hann segir ástæðuna ekki síst vera þá að eldurinn hafi veikt milligólf auk þess sem asbestryk sé innanhúss.

„Manni er ekki sama, því það væri agalegt ef það yrði slys þarna innanhúss vegna krakka sem hafa verið að brjótast inn. Það eru verulegar hættur þarna,“ segir Brynjólfur.

„Eldurinn var að mestu bundinn við kolageymslu sem er á neðstu hæð hússins og hún er gjörónýt. Inni í henni var eldvarnarhólf, lokað af með asbesti, sem varði bygginguna þannig að hún varð ekki alelda. Asbestplöturnar hafa orðið fyrir miklu hnjaski og festingar hafa losnað og sumar dottið niður. Milligólfið þarna inni er því mun veikburðara en það var fyrir eldsvoðann og getur gefið sig á einhverjum tímapunkti.“

Hér má sjá undirstöður gólfs sem hægt er að ganga á á hæðinni fyrir ofan. Hætt er við því að gólfið gefi sig. Ljósmynd/aðsend

Asbest hættulegt við innöndun

Sjálfur bar Brynjólfur grímu og var í hlífðargalla þegar hann fór inn í bygginguna í dag.

„Mig langar að beina því til foreldra að þetta sé enginn staður fyrir krakka. Bara það að anda að sér asbesti er hættulegt,“ segir hann.

Heimilislausir einnig farið inn

Hann segir að einnig hafi borið á því í gegnum tíðina að heimilislausir hafi brotist inn.

„Lögreglan hefur komið að fólki þarna. Og við höfum séð unglinga birta myndir af sér þarna inni,“ segir Brynjólfur.

Brynjólfur Þorkell Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Eignabyggðar. Ljósmynd/Aðsend

Varðandi tjónið á húsinu segir Brynjólfur að kolageymslan hafi gjörskemmst en að öðru leyti sé byggingin nokkuð heilleg, ef undan er skilið sót sem borist hefur um allt húsið.

Hann segir Eignabyggð hafa verið í samtali við Reykjavíkurborg um hvernig nýta megi fasteignina. Þau áform séu hins vegar í bið sem stendur.

Heimild: Mbl.is

Efni: Eigandi varar við Toppstöðinni: „Alvarleg staða“