Home Fréttir Í fréttum Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði

Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði

49
0
Frambjóðendur eru ekki sammála um uppbyggingu íbúða. mbl.is/Eyþór

Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, telur að röng nálgun hafi verið viðhöfð við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði. Ekki hafi verið lögð næg áhersla á að byggja hagkvæmt húsnæði sem henti ungu fólki. Á sama tíma vill hún leggja áherslu á þéttingu byggðar.

Fulltrúar meirihlutans í Hafnarfirði eru henni ósammála um þetta og bendir Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins á að ástæða þess að íbúðir hreyfist lítt á ákveðnum svæðum í Hafnar­firði um þessar mundir sé sú að efnahagsstjórn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafi leitt til verðbólgu og viðvarandi hás vaxtastigs. Þá bendir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, á að um 1.800 íbúðir hafi risið í Hafnar­firði á kjörtímabilinu sem senn er liðið.

Heimild: Mbl.is