Home Fréttir Í fréttum Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði

Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði

94
0
Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði
Laugin í Lundi hefur séð betri daga. RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði

Ráðist verður í framkvæmdir við nýja sundlaug í Lundi í Öxarfirði á næsta ári. Vonir standa til um að laugin verði tilbúin haustið 2027, í tæka tíð fyrir skólasund.

Fresta þurfti ýmsum framkvæmdum í vor í Norðurþingi vegna óvissu um fjárhagsstöðu bæjarsins eftir fráhvarf PCC frá Bakka. Þá settu málaferli gegn hvalaskoðunarfyrirtækjum fjárhag sveitarfélagsins í uppnám.

Hjálmar Bogi Hafliðason, þáverandi oddviti sveitarstjórnar, sagði að skynsamlegast væri að fresta ákveðnum framkvæmdum til að binda ekki hendur nýrrar sveitarstjórnar.

Ný sveitarstjórn hefur hafið störf og sett ýmislegt á framkvæmdaáætlun. Meðal annars nýtt laugarkar í Lundi í Öxafirði.

„Við gerum ráð fyrir því að gamla laugin verði rifin og það verði reist þarna nýtt laugarkar. Og búnaðurinn sem tilheyrir lauginni og kerfið í kringum hana, það verði byggt sérstakt aðstöðuhús á lóð laugarinnar fyrir það. Þannig við erum líka að gera úrbætur á því,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti sveitarstjórnar Norðurþings.

Sveitarfélagið vel í stakk búið

Sundkennsla barna í Öxarfjarðarskóla í haust verður snörp, í gömlu lauginni, til þess að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Hún segir sveitarfélagið ráða vel við þær framkvæmdir sem eru á dagskrá.

„Við vorum með svolítið mikið undir í framkvæmdum sem við ætluðum okkur að fara í á þessu ári. Þegar tekjuskerðingin kemur þá ákváðum við frekar í staðin fyrir að fara í aukna lántöku og slíkar breytingar á fjárhagsáætlun að taka í bremsuna, handbremsuna. Rekstrarstaðan er ágæt hjá sveitarfélaginu heilt yfir og við munum ráða vel við þessar framkvæmdir eða fjárfestingar á næsta ári.“

Heimild: Ruv.is

Efni: Byggja nýja sundlaug í Lundi í Öxafirði