Home Fréttir Í fréttum Byggja nýja höfn til að komast hjá Hormússundi

Byggja nýja höfn til að komast hjá Hormússundi

65
0
Byggja nýja höfn til að komast hjá Hormússundi
Ljósmynd: Gunnhildur Lind Photography

Byggja nýja höfn til að komast hjá Hormússundi

Eitt stærsta hafnarfyrirtæki heims hyggst byggja nýja höfn til þess að minnka vægi Hormússunds.

DP World, eitt stærsta hafnar- og flutningafyrirtæki heims, hyggst reisa nýja höfn og gámastöð á austurströnd Sameinuðu arabísku furstadæmanna til að draga úr hættu á röskunum á flutningum um Jebel Ali-höfnina í Dúbaí og siglingum um Hormússund.

Félagið er nú í viðræðum um að byggja nýja fjölnota höfn í Fújeira og nýja gámastöð við núverandi höfn í sama furstadæmi, samkvæmt heimildarmönnum Financial Times.

Að færa hluta af afkastagetunni út fyrir Dúbaí yrði stór breyting fyrir furstadæmið, sem hefur að miklu leyti byggt stöðu sína sem alþjóðleg miðstöð viðskipta og fjármála á vexti Jebel Ali.

Áformin falla þó að víðtækari stefnu stjórnvalda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um að styrkja hagkerfið gegn frekari átökum við Íran og minnka háð landsins á Hormússundi, þar sem siglingar hafa raskast vegna árása Írana.

Með nýju höfninni gætu flutningar farið um Ómanflóa án þess að fara um sundið og síðan landleiðina til Dúbaí, Abú Dabí og nágrannaríkja við Persaflóa.

Frá því stríðið hófst í lok febrúar hefur Íran skotið nærri 3.000 drónum eða eldflaugum að Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Eldur kom upp í Jebel Ali snemma í átökunum, sem yfirvöld sögðu hafa kviknað vegna braks eftir að eldflaug var grandað.

Fyrirhuguð höfn DP World. Skjáskot: Vb.is

Umferð um Jebel Ali, stærstu gámahöfn svæðisins, dróst saman um 90-95% eftir að Íran lokaði Hormuz-sundi í kjölfar árása Bandaríkjanna og Ísraels. DP World ræðir nú við stjórnvöld um fjármögnun og uppbyggingu verkefnisins. Háttsettur starfsmaður fyrirtækisins sagði að nýja höfnin gæti verið tilbúin innan hálfs annars árs.

Fyrirtækið vildi ekki staðfesta einstök verkefni á austurströndinni en sagði áform í vinnslu um fjölbreyttari leiðir til að komast í gegnum truflanirnar. Heimildarmenn segja fyrstu fjárfestingu nema hundruðum milljóna dala en hún gæti aukist eftir þörf fyrir meiri afkastagetu.

Heimild: Vb.is

Efni: Byggja nýja höfn til að komast hjá Hormússundi