Home Fréttir Í fréttum Bygging öryggisfangelsis boðin út

Bygging öryggisfangelsis boðin út

113
0
Bygging öryggisfangelsis boðin út
Fyrstu hugmyndir sérfræðinga um skipulag svæðisins. Mynd/stjornarrad.is

Bygging öryggisfangelsis boðin út

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir, FSRE, hefur auglýst eftir umsóknum fyrirtækja eða teyma fyrirtækja um þátttöku í forvali um hönnun og byggingu fyrsta áfanga nýs öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni.

Auglýsingin hefur verið birt á útboðsvefnum. Um er að ræða samkeppnisútboð eins og því er lýst í 36. gr. laga um opinber innkaup.

Í samkeppnisútboði geta fyrirtæki sótt um að taka þátt í innkaupaferli í kjölfar útboðsauglýsingar með því að senda inn upplýsingar vegna hæfismiðaðs vals sem kaupandi hefur farið fram á í auglýsingu eða útboðsgögnum.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Skilafrestur tilboða er til hádegis 4. nóvember nk.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 04.11.2026 Forval fyrir hönnun og byggingu fyrsta áfanga öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni

Efni: Bygging öryggisfangelsis boðin út