Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna
Framkvæmdir við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu kostuðu tæplega 362 milljónir króna og kostnaður við innkaup á tækjum og öðrum búnaði nam rúmlega 54 milljónum króna.
Þetta kemur fram í skriflegu svari frá forsætisráðuneytinu við fyrirspurn mbl.is.
Umfangsmiklar framkvæmdir, í samstarfi við Minjastofnun Íslands, við Ráðherrabústaðinn hófust haustið 2023.
Umfangsmiklar framkvæmdir
„Helstu framkvæmdir fólust í endurbyggingu garðskála á suðurhlið hússins nærri fyrri mynd hans, uppsetningu misturskerfis og öðrum aðgerðum til að bæta brunavarnir í húsinu, endurnýjun allra neysluvatnslagna í húsinu, uppsetningu hjólastólalyftu við aðalinngang hússins og breytingum á salerni til að gera það aðgengilegt fyrir hreyfihamlaða,“ segir í svari ráðuneytisins.
„Þá voru viðargólf slípuð og lökkuð, dúkalögð gólf endurnýjuð og veggir og loft ýmist veggfóðruð eða máluð. Allt tréverk var lakkað og eldunaraðstaða og vinnuaðstaða starfsfólks í húsinu endurnýjuð.“
Fór fram úr áætlunum
Heildarkostnaður við verklegar framkvæmdir við Ráðherrabústaðinn nam 361.916.533 krónum, en fyrri kostnaðaráætlun frá síðasta ári gerði ráð fyrir kostnaði upp á um 336 milljónir kr.
Ástæða þess að kostnaður fór fram úr áætlunum var sú að framkvæmdir á suðurgafli hússins reyndust umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir.
Kostnaður við innkaup á húsgögnum, eldhúsinnréttingum- og tækjum og öðrum búnaði nam 54.498.817 krónum.
Heimild: Mbl.is
Efni: Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna












