Allt á áætlun með þjóðarhöll
Samningaviðræður standa nú yfir um byggingu þjóðarhallar eftir að tilboð í verkið voru opnuð. Þrátt fyrir tafir segir fjármálaráðherra að áætlaður tímarammi verkefnisins standi enn. Ný höll er forsenda þess að Ísland geti haldið HM í handbolta 2031.
Samningaviðræður standa yfir
Samningaviðræður standa yfir vegna byggingar þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir. Sagt var frá því í janúarlok að stefnt væri að því að niðurstöður í samkeppnisútboði um byggingu hallarinnar lægju fyrir um miðjan mars, en í maílok hefur ekkert heyrst.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra var spurður af RÚV eftir ríkisstjórnarfund í gær hverjar nýjustu fréttir af gangi mála væru. „Það er búið að opna tilboð og eftir því sem ég best veit eru í gangi samningaviðræður við aðila til að hefja framkvæmdir,“ sagði fjármálaráðherra.
Spurður hvort allt varðandi þjóðarhöllina standi enn til og hver tímaramminn sé svaraði Daði: „Ég get ekki svarað því svona óundirbúið. En hann er óbreyttur, þannig að sá tímarammi sem var á verkefninu hann stendur.“
Vorið 2022 var undirrituð viljayfirlýsing um byggingu þjóðarhallar. Á blaðamannafundi í janúar 2023 var tilkynnt að slík höll ætti að rísa fyrir lok árs 2025. Áætlaður kostnaður var sagður um 15 milljarðar en ekki var þá ákveðið hvernig ríki og borg ætluðu að skipta verkefninu á milli sín.
Ári síðar, í janúar 2024, var félagið Þjóðarhöll ehf. stofnað, í 55% eigu ríkisins á móti 45% frá borginni. Í mars 2024 var opnað fyrir þátttöku í forvali samkeppnisútboðs fyrir hönnun og byggingu þjóðarhallar.
Á vef verkefnisins segir meðal annars:
- Stærð verði allt að 19.000 fermetrar með 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á viðburðum.
- Aðkoma og umhverfi uppfylli þarfir vegna stærri íþrótta- og menningarviðburða.
- Notendur þjóðarhallar verði nærliggjandi íþróttafélög, skólar, sérsambönd, almenningur og rekstraraðilar svo sem fyrir kennslu, æfingar, keppnir, viðburðahald og aðra stoðstarfsemi.
Í fréttum RÚV í janúar sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra sem fer jafnframt með íþróttamál um þjóðarhöllina: „Þetta var eitt af okkar samkomulagi við stjórnarmyndunarborðið að við myndum reisa hér glæsilega þjóðarhöll. Bara því fyrr, því betra.“
Allt á áætlun með þjóðarhöll
Ísland mun halda tvo riðla og einn milliriðil á heimsmeistaramóti karla í handbolta í janúar 2031. Forsenda þess er þó að ný höll verði risin og komin í notkun.
Heimild: Ruv.is












