Home Fréttir Í fréttum Brottfallið tengist vanda verknáms

Brottfallið tengist vanda verknáms

44
0
Brottfallið tengist vanda verknáms
Aðsókn nýnema í vinsælustu greinar Tækniskólans hefur aukist til muna, en fjármagnið hefur ekki aukist í samræmi við hana mbl.is/Valli

Brottfallið tengist vanda verknáms

Einn helsti rannsakandi Íslands á brottfalli nemenda úr námi á framhaldsskólastigi segir hátt hlutfall nemenda sem hverfa frá námi á Íslandi, en það hefur staðið í stað frá 2020, kunna að orsakast af þeim vanda sem verknámsskólar standa frammi fyrir.

Talsverður fjöldi nemenda hafi horfið frá bóknámi til þess að fara í verknám en lent á vegg þar sem iðngreinaskólar hafa neyðst til að vísa hundruðum nemenda frá árlega frá því að aðsókn nýútskrifaðra grunnskólanema í verknám tók kipp upp á við en fjármagn fylgdi ekki með.

„Þetta er bara ömurleg staða,“ segir skólameistari Tækniskólans í samtali við Morgunblaðið.

Lesa má nánar um málið á bls.16 í Morgunblaðinu í dag

Heimild: Mbl.is