Home Fréttir Í fréttum Bráðamatsdeild opnuð í september

Bráðamatsdeild opnuð í september

40
0
Bráðamatsdeild
Gámaeiningar hafa verið reistar við bráðamóttökuna að breskri fyrirmynd. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bráðamatsdeild opnuð

Ný bráðamatsdeild, sem er risin við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi, verður opnuð í september næstkomandi.

Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn mbl.is í tengslum við stöðu mála vegna álags á bráðamóttökunni og berklasmita.

Fram kom í tilkynningu frá Landspítalanum fyrir þremur mánuðum síðan að deildin yrði opnuð innan skamms.

Um 20 rýma sólarhringsdeild verður að ræða þar sem þverfaglegt teymi mun sinna sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga. Deildin og skipulag starfseminnar er nýmæli að erlendri fyrirmynd.

Bráðamóttaka Landspítalans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vilja létta álagi af bráðamóttöku

„Markmiðið er að létta álagi af bráðamóttökunni, bæta flæði sjúklinga og bæta jafnframt þjónustu við sjúklinga (Áhersla er á skjótt og markvisst mat á sjúklingum, samþætta teymisvinnu og skýra og árangursríka verkferla),” segir einnig í svarinu.

Ýmsar ástæður fyrir betri stöðu

„Það hefur verið gripið til margvíslegra aðgerða vegna álags á bráðamóttökunni með áherslu á úrræði sem gera Landspítala kleift að útskrifa aldraða einstaklinga með færni- og heilsumat í viðeigandi úrræði,” segir í svarinu um stöðu mála á bráðamóttökunni.

Staðan hafi batnað síðan starfsfólk Landspítala fundaði um bráðamóttökuna í febrúar síðastliðnum. „Í vikunni (26. maí) voru 76 einstaklingar með færni og heilsumat á Landspítala en þegar verst lét fór fjöldinn yfir 130 og var lengi vel um milli 100 og 120.”

Fram kemur að ýmsar ástæður séu fyrir þessari betri stöðu á bráðamóttökunni. Opnun Urðarhvarfs var hraðað eins og unnt var en þar eru 100 skammtímahjúkrunarrými sem Landspítali hefur alfarið til ráðstöfunar fyrir einstaklinga af spítalanum sem eru með færni- og heilsumat. 48 skammtímarými á Vífilsstöðum verða opnuð á ný í júní eftir endurbætur á húsnæðinu, auk þess sem stefnt er á opnun Hlévangs í september. Þar verða 24 skammtímahjúkrunarrými.

„Auk þessa átti ráðuneytið samstarf við hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu snemma á þessu ári sem gerði kleift að opna nokkur skammtímahjúkrunarrými til ráðstöfunar fyrir Landspítala. Þá er unnið að gerð sk. marksamnings sem gerir hjúkrunarheimilum sem það geta kleift að bæta við allt að 10% rýmafjölda án sérstakra viðræðna við ríkið,” segir jafnframt í svarinu.

Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur

Skriður eftir margra ára stöðnun

Fram kemur að eftir margra ára stöðnun í uppbyggingu hjúkrunarheimila sé kominn skriður á verkefni og framkvæmdir. Tvö ný heimili hafi verið opnuð á liðnu ári, í Reykjanesbæ og í Kópavogi með samtals 144 rýmum, þar af 114 nýjum. Á næsta ári muni hjúkrunarrýmum fjölga um tæp 200.

Í svarinu er einnig bent á framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026 til 2030 sem var birt í mars síðastliðnum. Þar er gert ráð fyrir fjölgun um 1.335 ný rými á tímabilinu, auk endurbóta með bættri aðstöðu í 152 hjúkrunarrýmum.

Heimild: Mbl.is

Efni: Bráðamatsdeild