Home Fréttir Í fréttum 16.06.2026 Borgarlína – Rammasamningur um Borgarlínustöðvar – Útboð

16.06.2026 Borgarlína – Rammasamningur um Borgarlínustöðvar – Útboð

126
0

Útboð: Borgarlína – Rammasamningur um Borgarlínustöðvar

Betri samgöngur hafa boðið út rammasamning vegna framleiðslu og afhendingar stöðvabúnaðar fyrir Borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu.

Útboðið snýr að gerð rammasamnings við einn birgi um framleiðslu og afhendingu stöðvarbúnaðar fyrir Borgarlínu, sem verður nýtt hágæða almenningssamgöngukerfi fyrir höfuðborgarsvæðið.

Stöðvarskýli, skjáir og tæknibúnaður

Samkvæmt útboðsgögnum nær verkefnið meðal annars til framleiðslu og afhendingar á:

  • stöðvarskýlum
  • tækniskápum
  • merkingarsúlum
  • bekkjum
  • ruslastömpum
  • stafrænum upplýsingaskjám
  • tengdum íhlutum

Rammasamningurinn felur bæði í sér skuldbundinn hluta og valkvæðan hluta vegna mögulegrar uppbyggingar viðbótarstöðva í síðari áföngum Borgarlínuverkefnisins.

Fyrsta stöðin reist í Reykjavík

Útboðið tekur ekki til framkvæmda við palla, undirstöður eða jarðvinnu. Hins vegar þarf valinn birgi að setja upp eina fyrstu stöð í Reykjavík til samþykktar auk þess að leggja fram leiðbeiningar fyrir samsetningu og uppsetningu annarra stöðva.

Skilafrestur í júní

Útboðsgögn verða afhent 11. maí 2026 klukkan 13:00. Skilafrestur tilboða er til 16. júní 2026 klukkan 14:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma.

Sjá frekar.

Heimild: Betri samgöngur