Home Fréttir Í fréttum 27.07.2026 Böggvisbraut suður, endurnýjun götu og fráveitulagna

27.07.2026 Böggvisbraut suður, endurnýjun götu og fráveitulagna

91
0
Samið við Steypustöðina á Dalvík um endurnýjun Böggvisbrautar suður
Mynd: Dalvíkurbyggð

Böggvisbraut suður, endurnýjun götu og fráveitulagna

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á Böggvisbraut suður.  Verkið felst í endurnýjun á syðstu 220 metrum Böggvisbrautar, frá Mímisvegi og suður úr.

Á þessum kafla á að endurnýja núverandi fráveitulagnir, tvöfalda fráveitukerfið og tengja fráveitukerfinu. Í verkinu felst líka endurnýjun á 30 cm burðar- og jöfnunarlagi götunnar og endurnýjun á malbikuðu yfirborði auk endurnýjunar á gangstétt og kantsteini austan götu.

Helstu magntölur:

Gatnagerð

  • Upprif á malbiki – 2.450m2
  • Upprif á kantsteini – 210m
  • Gröftur – 600m3
  • Fylling – 600m3
  • Malbik – 2.450m2
  • Nýr kantsteinn – 210m

Fráveita

  • Fráveitulagnir – 560m
  • Brunnar – 11 stk.
  • Ný niðurföll – 8 stk.
  • Fjarlægja eldri lagnir – 295 m
  • Gröftur – 1.720m3
  • Fylling og söndun að lögnum – 1.365m3

Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.

Útboðsgögn verða send þeim sem vilja eftir að beiðni þess efnis berst á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is 

Fyrirspurnartíma lýkur 20. júlí 2026 og rennur svarfrestur fyrirspurna út 22. júlí 2026.

Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 mánudaginn 27. júlí 2026 á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða á pappír á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.

Heimild: Dalvíkurbyggð