
BMW og MINI fá sínar eigin höfuðstöðvar
Framkvæmdir standa nú yfir við byggingu nýrra höfuðstöðva undir BMW og MINI á Íslandi við Hestháls 10 í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að byggingin verði tekin í notkun snemma á næsta ári. Verkefnastjóri er Gunnar Már Gunnarsson, framkvæmdastjóri EGG-fasteigna sem byggja húsið fyrir BL ehf.
Knútur Steinn Kárason, nýráðinn framkvæmdastjóri BMW og MINI á Íslandi, segir að alls verði byggingin um 1.600 fermetrar með sýningarsal, setustofum, þjónustuverkstæði, varahlutasölu og annarri nauðsynlegri stoðþjónustu sem fylgir rekstrinum.
Húsnæðið er byggt samkvæmt „Retail.Next“ hugmyndafræði BMW, sem snýst í meginatriðum um að færa áhersluna frá hefðbundinni bílasölu yfir í heildstæða upplifun viðskiptavina af BMW og MINI, þar sem sýningarsalurinn verður ekki lengur fyrst og fremst staður þar sem sölumaður situr við skrifborð og selur bíl.











