Home Fréttir Í fréttum Bílastæðahúsið að verða tilbúið

Bílastæðahúsið að verða tilbúið

113
0
Bílastæðahúsið að verða tilbúið
Myndin er tekin frá Hringbraut. Umferðarmiðstöðin er á vinstri hönd. Það verða tímamót fyrir starfsmenn Landspítalans að fá þetta hús. mbl.is/sisi

Bílastæðahúsið að verða tilbúið

Framkvæmdir við hið nýja bílastæða- og tæknihús Nýs Landspítala (NSLH) við Hringbraut eru á lokastigi.

Stefnt er að opnun innan skamms, að sögn Gunnars Savarssonar framkvæmdastjóra NSLH.

Starfsmenn Landspítala bíða spenntir eftir því að húsið verði tekið í notkun, enda stutt í að vetur gangi í garð og allra veðra von.

Bílastæðahúsið stendur vestan megin við nýtt rannsóknahús NSLH og er á átta hæðum. Þar af eru þrjár hæðir neðanjarðar.

Bílastæðapallarnir eru 16 talsins, en um er að ræða 522 bílastæði auk 200 stæða fyrir reiðhjól.

Húsið er um 20.000 fermetrar að stærð, um 17.000 fermetrar eru fyrir bílastæði en um 3.000 fyrir tæknihluta og geymslur.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Bílastæðahús rísa við spítalann

Efni: Bílastæðahúsið að verða tilbúið