Home Fréttir Í fréttum Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu

Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu

11
0
Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. RÚV – Ragnar Visage

Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu

Alþingi samþykkti í morgun að hækka stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðamarkaði. Hart var tekist á um málið í þingsal.

Frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar félags- og húsnæðismálaráðherra um hækkun stofnframlaga ríkisins til byggingar óhagnaðardrifinna leiguíbúða var samþykkt á Alþingi í morgun. Getur framlagið orðið allt að 23 prósent af stofnverði íbúðar en hlutfallið var áður 18 prósent.

Viðbótarframlag til íbúða í eigu sveitarfélaga fyrir námsmenn eða öryrkja hækkar úr 4 í 5 prósent. Frumvarpið var hluti af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og er ætlað að gera óhagnaðardrifnum leigufélögum kleift að byggja fleiri íbúðir. Lögin öðlast þegar gildi og taka til þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið frá og með nóvember 2025.

Þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæði með frumvarpinu, Miðflokkur var á móti en þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sátu hjá. Nokkuð hart var tekist á um málið við atkvæðagreiðsluna.

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði vandann á húsnæðismarkaði felast í lægri vöxtum en ekki auknum ríkisútgjöldum.

„Það sem ríkisstjórnin er sífellt að reyna að gera er að gera fleiri og fleiri íbúa þessa lands að leiguliðum í staðinn fyrir að gera fólk að eignafólki.“

Ragnar Þór sagði þetta aðeins hluta af aðgerðum ríkisstjórnarinnar og sagði að á næstu vikum verði kynntar breytingar sem fela í sér mikla einföldun á byggingareglugerð og skipulagsferli.

„Mér finnst ótrúlegt að heyra hér að stjórnarandstaðan er á móti því að veita allavega einhverja innspýtingu í byggingamarkaðinn til handa verktökum og tekjulágu fólki. Mér finnst það með ólíkindum.“

Heimild: Ruv.is

Efni: Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu