Home Fréttir Í fréttum 22.05.2026 Arn­ar­land – Gatna­gerð og veitu­lagn­ir – Útboð

22.05.2026 Arn­ar­land – Gatna­gerð og veitu­lagn­ir – Útboð

165
0
Gert er ráð fyrir um 450 íbúðum sem og atvinnuhúsnæði á reitnum. Mynd: Arnarland

Útboð: Arn­ar­land – Gatna­gerð og veitu­lagn­ir

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Arnarland – Gatnagerð og veitulagnir (fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir auk landmótunar).

Arnarland er nýtt uppbyggingarsvæði í Garðabæ og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og sveitarfélagamörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs.

Helstu stærðir og magntölur fyrir hverfið eru eftirfarandi:

  • Lengd gatna 1.270 m
  • Lengd stíga 180 m
  • Uppúrtekt úr götum og stígum 40.400 m3
  • Losun á klöpp í götu- og stígastæði 11.300 m3
  • Losun á klöpp í skurðstæði 5.800 m3
  • Styrktarlag 7.500 m3
  • Fyllingar 5.200 m3
  • Malbik 11.200 m2
  • Fráveitulagnir 2.185 m
  • Neysluvatnslagnir 1.520 m
  • Skurðir veitna 4.310 m

Verklok eru 1. apríl 2027.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg í útboðskerfi NTI Bidco. Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 7. maí 2026.

Tilboð verða opnuð rafrænt miðvikudaginn 22. maí 2026.