Vegagerðin óskar eftir tilboðum í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum undir brú í Berufjarðarbotni.
Helstu magntölur eru:
Framleiðsla niðurrekstrarstaura: 2.010 m
Flutningur niðurrekstrarstaura : 366,3 tonn
Verklok eru fyrir 1. febrúar 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 17. júlí 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 9. ágúst 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.