Home Fréttir Í fréttum Togpróf fyrir steypu í snjósöfnunargrind á Patreksfirði

Togpróf fyrir steypu í snjósöfnunargrind á Patreksfirði

130
0
Mynd: Fsr.is

Framkvæmdir fyrir ofan fjallið Brellur á Patreksfirði eru í fullum gangi þar sem setja á tvær 120 m langar snjósöfnunargrindur og fimm vindkljúfa.

<>
  • Snjósöfnunargrind
    Uppsetning snjósöfnunargrindar
  • Togpróf
    Togpróf fyrir steypu

Framkvæmdir fyrir ofan Brellur á Patreksfirði eru í fullum gangi þar sem setja á tvær 120 m langar snjósöfnunargrindur og fimm vindkljúfa til að minnka snjósöfnun á upptakasvæðum og draga úr hengjumyndun við upptakasvæðin.

Búið er að setja aðra snjósöfnunargrindina niður og ná bergfestur hennar 3 metra niður í jörðu. Bergfesturnar eru festar með þar til gerðri steypu. Togpróf var gert til að kanna hvort steypan standist ekki ákveðið álag eða 40 kN. Ekkert gaf eftir í togprófinu og steypan stóðst mun meira álag en til var ætlast.

Heimild: Fsr.is