8.5.2017
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Norðursvæði og Austursvæði árið 2017.
Helstu magntölur:
Útlögn malbiks | 9.058 | m2 |
Hjólfarafylling og afrétting | 12.479 | m2 |
Fræsing | 3.064 | m2 |
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2017
Útboðsgögnin eru seld á minnislykli í móttöku Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík, frá og með mánudeginum 8. maí 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. maí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.