Home Fréttir Í fréttum 14 lóðum úthlutað við Hjallabrún í Hveragerði

14 lóðum úthlutað við Hjallabrún í Hveragerði

285
0

Við úthlutun lóða við Hjallabrún hafði bæjarráð til hliðsjónar að reyna að tryggja að sem flestir umsækjendur gætu fengið lóð. Sú regla var samþykkt að hvert fyrirtæki eða forsvarsmenn þess gætu einungis fengið eina lóð og að aðilar með lögheimili á sama stað gætu einungis fengið eina lóð.

<>

Á fundi bæjarráðs þann 27. apríl var öllum lóðum við Hjallabrún úthlutað. 184 umsóknir bárust um hinar 14 lóðir.

Í upphafi fundar samþykkti bæjarráð eftirfarandi:

Bæjarráð samþykkir að til að reyna að tryggja að sem flestir umsækjendur geti fengið lóð verði eftirfarandi haft til hliðsjónar:

Hvert fyrirtæki eða forsvarsmenn þess geta einungis fengið eina lóð.

Hjón, sambýlisfólk eða aðilar með lögheimili á sama stað skoðast sem einn umsóknaraðili og geta því aðeins fengið eina lóð.

Við úthlutun lóða til framkvæmdaaðila skal taka tillit til þess hvort viðkomandi hefur staðið við skuldbindingar sínar vegna fyrri úthlutana, þar með talið hvort að eðlileg framvinda hafi verið í byggingarframkvæmdum. Sé svo ekki mun viðkomandi ekki fá úthlutað lóð að þessu sinni.

7 aðilar til vara verða jafnframt dregnir út og geta þeir þá í þeirri röð sem þeir eru dregnir valið lóðir sem falla til baka til bæjarins.

Framsal lóða er óheimil og mun bæjarráð ekki samþykkja nafnabreytingar á úthlutuðum lóðum fyrr en framkvæmdir teljast hafnar á lóðinni og lóðarleigusamningur hefur verið gefinn út.

Úthlutun fellur úr gildi hafi lóðarhafi ekki skilað fullgildum aðaluppdráttum til byggingafulltrúa innan þriggja mánaða frá samþykkt um lóðarúthlutun og hafið framkvæmdir á lóðinni innan sex mánaða frá sama degi.

Fulltrúi sýslumanns Kristján Óðinn Unnarsson hafði yfirumsjón með útdrætti um lóðirnar.

Niðurstaðan var að eftirtaldir aðilar fá tilboð um lóðir við Hjallabrún.

Hjallabrún 1-3 Sveinn H.Guðmundsson.
Hjallabrún 2-4 Halldór Sveinsson.
Hjallabrún 5-7 Laugavegur ehf.
Hjallabrún 6-8 Aðalsteinn Ingvason.
Hjallabrún 9-11 Sigurður Kaldal.
Hjallabrún 10-12 Gísli Rúnar Sveinsson.
Hjallabrún 13-15 Hilmar Jónsson.
Hjallabrún 14-16 Sigrún Lilja Hjartardóttir.
Hjallabrún 17-19 Brynleifur Siglaugsson.
Hjallabrún 18-20 Anton Svanur Guðmundsson.
Hjallabrún 21-23 Ómar Davíðsson.
Hjallabrún 25-27 Unnar Steinn Guðmundsson.
Hjallabrún 29-31 Byggingarfélagið Landsbyggð.
Hjallabrún 33-35 B13 ehf.

Til vara voru dregin upp eftirtalin nöfn:

1. Ástré ehf.
2. Guðmundur Jónsson.
3. Friðbert Bragason.
4. Hannes Kristmundsson.
5. Björn Hauksson.
6. Pegasos.
7. Jón Óskar Hilmarsson.

Bæjarráð samþykkti jafnframt að byggingafulltrúa verði falið að gera tillögu að nýjum reglum um úthlutun lóða í Hveragerði.

Heimild: Hveragerðisbær