F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Hverfið mitt 2017, austurhluti – Útboð 3, Breiðholt – Útboð nr. 13941
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 14:00 miðvikudaginn 26. apríl 2017.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:30 þann 9. maí 2017.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Betri hverfi 2017 í austurhluta Reykjavíkurborgar.
Í þessu verki er um að ræða verkefni í hverfi 6, þ.e. Breiðholti. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, upprif á malbiki, hellulögn, malbikun og þökulögn.
Helstu magntölur eru:
• Gröftur: 250 m3
• Fylling: 220 m3
• Jöfnunarlag undir gervigras:7 80 m2
• Upprif á malbiki: 880 m2
• Hellulögn: 300 m2
• Malbikun: 170 m2
• Þökulögn: 330 m2
Verklok: September 2017