Home Fréttir Í fréttum Garðabær kaupir land Vífilsstaða

Garðabær kaupir land Vífilsstaða

257
0
Vífilsstaðir

Garðabær og fjármála- og efnahagsráðuneytið f.h. ríkissjóðs hafa náð samkomulagi um að Garðabær kaupi jörðina Vífilsstaði. Um er að ræða alls 202,4 ha sem er svæðið í kringum Vífilsstaðaspítala, svæði austan Vífilsstaða (Skyggnir), núverandi golfvallarsvæði GKG, friðland í Vífilsstaðahrauni (Svínahrauni) og Rjúpnahæð á móts við Kjóavelli.

<>

Kaupverðið nemur 558,6 mkr og byggir það á mati á grunnverði landsins sem aðilar stóðu sameiginlega að.

Við undirritun kaupsamnings koma til greiðslu 99,3 mkr.  Eftirstöðvar koma til greiðslu í tengslum við uppbyggingu svæðisins eða eigi síðar en innan átta ára. Til viðbótar grunnverði á seljandi rétt á hlutdeild í ábata af sölu byggingarréttar á svæðinu.

Undanskildar eru allar húseignir ríkisins á Vífilsstöðum en gerðir verða lóðarsamningar um eignirnar.
Með kaupum á landinu tryggir Garðabær sér forræði yfir eignarhaldi landsins sem mun auðvelda bæjarfélaginu að vinna að gerð skipulagsáætlana fyrir svæðið.

Í tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir að svæði Vetrarmýrar, Hnoðraholts og Vífilsstaða verði eitt skólasvæði með 1200-1500 íbúðum þar sem fléttast saman ólíkir hagsmunir með uppbyggingu íbúðarbyggðar, skóla- og íþróttasvæði og atvinnu- og þjónustusvæði.

Gert er ráð fyrir að bæjarstjóri Garðabæjar og fjármála- og efnahagsráðherra staðfesti samkomulagið með undirskrift sinni miðvikudaginn 19. apríl nk. í golfskála GKG.

Garðabær fyrirhugar í framhaldi af undirritun samningsins að efna til samkeppni um rammaskipulag svæðisins.

Heimild: Garðabær.is