Home Fréttir Í fréttum Hvað á húsið að heita?

Hvað á húsið að heita?

97
0
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur MYND/HÍ

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Hugvísindasvið Háskóla Íslands efna til samkeppni um nafn á nýbyggingu erlendra tungumála sem verður vígð við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta hinn 20. apríl næstkomandi.

<>

Verðlaunum er heitið fyrir bestu tillöguna en senda má tillögur inn á vefsíðuna Hvað á húsið að heita?

Byggingin mun hýsa Vigdísarstofnun – alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, sem mun starfa undir merkjum UNESCO.

Þar verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur og í húsinu er aðstaða fyrir fyrirlestra-, ráðstefnu- og sýningarhald, vinnuaðstaða fyrir erlenda gestafræðimenn og fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum.

Þar verður einnig Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, þar sem hægt verður að fræðast um líf hennar og störf.

Heimild: Visir.is

Previous article30.03.2017 Endurlökkun íþróttagólfa í fasteignum Reykjavíkurborgar 2017
Next articleReykjavíkurborg semur við aðila vegna útboðs. Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 4 og 5