F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Geirsgata – Kalkofnsvegur. Flutningur gatnamóta 2017 – Eftirlit. Útboð nr. 13873.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 21. febrúar 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nauðsynlegt er að nota Internet Explorer.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2017.
Verkið felst í:
að hafa eftirlit með framkvæmdum vegna flutnings gatnamóta Geirsgötu og Kalkofnsvegar. Um er að ræða eftirlit með jarðvinnu, lagnavinnu og yfirborðsfrágangi ásamt innmælingum á veitulögnum og lögnum vegna umferðarstýringar.
Helstu verkþættir eru:
• Malbikaðar götur: 10.700 m²
• Grásteinskantur: 1.400 m
• Hellulögn: 2.800 m²
• Fráveitulagnir úr plasti: 400 m
• Snjóbræðslulagnir: 3.000 m²
• Malbikaðir hjólastígar: 350 m
Eftirlitsaðili skal annast eftirlit og innmælingar fyrir verkkaupa.