Home Í fréttum Niðurstöður útboða Metrostav og Suðurverk með lægsta boð í Dýrafjarðargöng uppá ca. 8,7 milljarða...

Metrostav og Suðurverk með lægsta boð í Dýrafjarðargöng uppá ca. 8,7 milljarða króna

261
0

24.1.2017

<>

Tilboð Metrostav a.s. og Suðurverks hf. í gerð Dýrafjarðarganga nam tæpum 8,7 milljörðum króna eða rúmum 93 prósentum af kostnaðaráætlun og var um 630 milljónum króna lægra en næstu boð sem bæði voru nánast það sama og kostnaðarætlunin. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist síðar á árinu en fara þarf yfir tilboðin og semja við verktakann sem iðulega tekur nokkrar vikur.

Gangamunninn Arnarfjarðarmegin verður skammt frá Mjólkárvirkjun. Mynd: GRAFÍK/VEGAGERÐIN.
Gangamunninn Arnarfjarðarmegin verður skammt frá Mjólkárvirkjun. Mynd: GRAFÍK/VEGAGERÐIN.

Tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag 24. janúar. Áður hafði farið fram forval þar sem sjö sýndu því áhuga. Fimm skiluðu að lokum inn tilboði, allt verktakar sem reynslu hafa af jarðgangagerð á Íslandi utan ítalski verktakinn C.M.C. di Ravenna.

Tilboðin voru þessi:

Bjóðendur Tilboðsupphæð Hlutfall af verktakak.
Metrostav a.s., Tékklandi og Suðurverk hf., Íslandi   8.687.208.080,-    93,21 %
C.M.C. di Ravenna, Ítalíu   9.316.632.535,-   99,97 %
ÍSTAK hf., Íslandi og
Per Aarsleff A/S, Danmörku
  9.322.252.133,-  100,03 %
ÍAV hf., Íslandi og
Marti Contractors Ltd., Sviss 
10.538.586.652,-  113,08 %
LNS Saga ehf., Íslandi og Leonhard Nilsen & Sönner AS, Noregi  10.864.596.942,-  116,57 % 
           Frávikstilboð:    
ÍSTAK hf., Íslandi og
Per Aarsleff A/S, Danmörku
  9.250.778.500,-  
       
Áætlaður verktakakostnaður   9.319.890.000,-  100,00 %