7. des. 2016
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði. Verkefnið felur í sér jarðvinnu, þ.e. uppgröft á lausum jarðvegi, losun á klöpp ásamt brottakstri, upprif á byggingarefnum sem fyrir eru, breytingar á lögnum og varnargirðingu umhverfis vinnusvæðið.
Helstu magntölur eru:
- Uppgröftur á lausum jarðvegi 500 m3
- Losun á klöpp 4.000 m3
- Girðingar 300 m
Útboðsgögn eru seld í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, verð kr. 5.000.-Tilboð verða opnuð hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2, þriðjudaginn 3. janúar 2017, kl. 11:00.
Verklok eru 10. mars 2017.