Home Fréttir Í fréttum Líklega eru um 5 ár þar til öllum framkvæmdum líkur í miðborg...

Líklega eru um 5 ár þar til öllum framkvæmdum líkur í miðborg Reykjavíkur

234
0
Mynd: Ingólfur Bjarni Sigfússon - RÚV
Líklega eru um 5 ár þar til öllum framkvæmdum líkur í miðborg Reykjavíkur. Þetta reynir á þolinmæði margra, segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Flakkað um miðborgina með borgarstjóra laugardag kl. 1500 á Rás 1.

 

<>

Erum miklu grimmari en áður

Segir borgarstjóri jafnframt þegar kemur að dagsektum, sem er beitt ef menn fara ekki að lögum. Margt er að takast mjög vel í uppbyggingu í miðborginni, en það verður að passa uppá það smáa, borgin verður að geta komið okkur skemmtilega á óvart og það verður að vera pláss fyrir alls konar fólk.

Búa í ljóninu

Mörður Árnason íslenskufræðingur og Linda Vilhjálmsdóttir skáld hafa búið við Laugaveg 49 frá 1989, í húsi sem var gjarnan kallað ljónið hér áður fyrr, ekki er alveg ljóst hvers vegna, kannski er það tvöfalda þakið, sem er er eins og ljónsmakki, segir Linda. Mörður á sterkar taugar til Laugavegarins en hann bjó þar einnig sem barn og móðir hans bjó í “bleika húsinu” á móti í áratugi. Mörður og Linda kalla 101 Skugga ljótu blokkirnar, enda hafa þær tekið af þeim útsýnið og Linda flettir fasteignablöðunum á vorin og vill komast nær sjónum.

Litlu húsin á Hverfisgötu

Afar lágreist byggð er við Hverfisgötu 65 – 69, og nánast engar byggingaheimildir á því svæði, húsin fá því líklega að standa, enda flest orðin vel yfir 100 ára. Í einu þeirra er HIV Ísland, og þar eyðir Einar Þór Jónsson formaður samtakanna obbanum úr deginum. Hann kann vel við breytingarnar á Hverfisgötunni, og finnst gott að samtökin eru í miðbænum.

Heimild: Ruv.is