Home Fréttir Í fréttum Arnar­nesvegur tekur á sig mynd

Arnar­nesvegur tekur á sig mynd

60
0
Í maí er áætlað að hefja malbikun yfirlaga á Breiðholtsbraut og vegtenginga að nýju brúnni. Búast má við einhverjum umferðartöfum vegna þeirrar vinnu. Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson /Vegagerðin

Arnar­nesvegur
Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram. Fjölda lykilverkefna er lokið og unnið er að frágangi brúa, undirganga og vegtenginga. Í maí er áætlað að hefja malbikun á Breiðholtsbraut.

Ný göngubrú er í smíðum yfir Arnarnesveg, til móts við Turnahvarf. Búið er að steypa brúardekkið.

Framkvæmdin er umfangsmikil og unnið er á nokkrum stöðum í einu. Um 50 manns starfa við verkið, þar á meðal smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar. 

Á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut er unnið við uppsetningu vegriða og hljóðveggs, sem aðskilur akbrautina frá göngu- og hjólaleiðinni. Einnig er unnið að ýmsum frágangi sem er á lokametrunum. 

Undirgöngin við Rjúpnaveg eru að hluta úr forsteyptum einingum.

Núna í maí er síðan reiknað með að hefja malbikun yfirlaga á Breiðholtsbraut og vegtenginga að nýju brúnni. Búast má við einhverjum umferðartöfum vegna þeirrar vinnu. 

Þá er ný göngubrú í smíðum yfir Arnarnesveg, til móts við Turnahvarf. Brúardekkið var steypt í byrjun apríl en nú er unnið við ýmsan frágang, svo sem handriði á brúnni. Auk þess er verið að taka verkpalla niður.  

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdum framkvæmdum eru í nóvember 2026.

Ný undirgöng, sem eru í byggingu undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg, eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum. Einingarnar eru nú komnar á sinn stað. Unnið er við frágang þeirra og uppsteypu stoðveggja, sem verða við enda undirganganna. 

Um 50 manns starfa við verkið, þar á meðal smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar.

Frost úr fyllingum

Í vegstæði Arnarnesvegar, milli Breiðholtsbrautar og Rjúpnavegs, er frost farið úr fyllingum eftir kuldatíð. Þar er unnið við útkeyrslu styrktarlags, uppsetningu ljósastaura og frágang ofanvatnslagna.  

Unnið er í vegstæði Arnarnesvegar.

Við göngu- og hjólastíginn, sem verið er að leggja austan við veginn, er unnið við uppsetningu ljósastaura og frágang burðarlags undir malbik. 

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdum framkvæmdum eru í nóvember 2026.

Unnið er í vegstæði Arnarnesvegar.

Verkið heyrir undir Samgöngusáttmálann og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk. Eftirlit er í höndum VSB. 

Heimild: Vegagerdin