Home Fréttir Í fréttum Reitir reisa leikskóla í samstarfi við Hýsi

Reitir reisa leikskóla í samstarfi við Hýsi

67
0
Ingi Þór Þorsteinsson og Sverrir H. Pálmarsson hjá Hýsi, Birgir Þór Birgisson, Guðni Aðalsteinsson og Aron Elí Sævarsson hjá Reitum. Ljósmynd: Aðsend mynd

Reitir og Hýsi-Verkheimar munu hefja framleiðslu og uppbyggingu á skólabyggingum fyrir sveitarfélög og aðra aðila.

Reitir og Hýsi-Verkheimar hafa hafið samstarf um framleiðslu og uppbyggingu á skólabyggingum fyrir sveitarfélög og aðra aðila. Lausnin felur í sér færanlega skóla með stöðluðum húsaeiningum sem henta vel fyrir starfsemi leikskóla.

Í tilkynningu segir að hægt verði að leigja skólabyggingarnar til skemmri eða lengri tíma og liggur nú fyrir frumhönnun að fimm deilda leikskóla fyrir 90 börn sem hægt er að afhenda á sex mánuðum.

Þar að auki er hægt að stækka hönnunina í leikskóla með sjö deildum sem rúmar 120 börn eða útfæra leikskólana eftir þörfum, kröfum og ólíkum lóðum. Fjöldi möguleika býðst við val á klæðningu, þakformi, upphitun og innra skipulagi.

„Við erum stolt af því að nýta okkar þekkingu og reynslu af rekstri atvinnufasteigna í uppbyggingu leikskóla sem mikil þörf er á. Lausnin sem við bjóðum í samstarfi við Hýsi er í senn skilvirk, hagkvæm og sveigjanleg. Frá frumteikningu að fullbúnum leikskóla getur ferlið tekið 6 mánuði,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

Reitir munu annast útleigu og rekstur leikskólabygginganna en félagið rekur nú þegar 150 fasteignir, eða 490.000 fermetra.

Hýsi mun annast samskipti við framleiðanda eininga og uppsetningu þeirra hérlendis í samstarfi við Reiti en fyrirtækið hefur nú þegar reist þrjá grunnskóla og þrjá leikskóla úr stöðluðum húseiningum á Íslandi, eða samtals um 4.500 fermetra.

Heimild: Vb.is