Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri félagsins sem byggir Heklureit, segir búið að selja um helming 100 íbúða á Laugavegi 170. Það er 2. áfanginn á Heklureit en leigufélagið Alma keypti margar af smærri íbúðunum á Laugavegi 170.
Með því er búið að selja um 100 íbúðir samanlagt í fyrstu tveimur áföngunum á Heklureit.
Kosta allt að 299 milljónir
Örn segir kynningu á öðrum áfanganum hafa hafist með kynningu á þakíbúðunum en þær kosta 169-299 milljónir króna.
Hann segir hraða uppbyggingarinnar munu taka mið af efnahagsástandinu. Næsti áfangi kallar á niðurrif Hekluhússins og segir Örn mega gera ráð fyrir að reiturinn verði fullbyggður um og eftir árið 2030.
Heimild: Mbl.is












