Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Vel gengur við uppbyggingu leikskólans Hagasteins í Hagahverfi á Akureyri

Vel gengur við uppbyggingu leikskólans Hagasteins í Hagahverfi á Akureyri

43
0
Mynd: Akureyri.is

Leikskólinn rís við Naustagötu í ört vaxandi hverfi þar sem þörf er á auknu leikskólaplássi og því mikilvæg viðbót við þjónustu við fjölskyldur í Hagahverfi.

Framkvæmdir við leikskólann Hagastein í Hagahverfi ganga vel. Fyrsta skóflustungan var tekin í maí árið 2025 og hófust framkvæmdir með jarðvinnu í júní sama ár. Nú er verið að leggja lokahönd á uppsetningu seinni áfanga byggingarinnar og á sama tíma er unnið áfram að innanhússfrágangi í fyrri áfanga.

Stefnt er að afhendingu fyrri áfanga um miðjan ágúst 2026. Þar verða fjórar deildir, eldhús, salur, hluti af starfsmannaaðstöðu og frágengin leikskólalóð að hluta ásamt bílastæðum austan við skóla. Seinni áfangi mun fylgja í kjölfarið og er stefnt að fullri starfsemi í leikskólanum byrjun árs 2027.

Byggingin er reist úr krosslímdum gegnheilum timbureiningum og er sérstök áhersla lögð á vandaða rakavörn og góða hljóðvist. Rakamælingar eru framkvæmdar reglulega og við framkvæmd er lögð áhersla á að tryggt sé, eins og kostur er, að utanaðkomandi bleyta komist ekki að byggingarefninu. Aðalverktaki verksins er Byggingafélagið Húsheild/Hyrna ehf. sem hefur staðið vel að framkvæmd verksins með verkkaupa.

Leikskólinn verður átta deilda og mun rúma allt að 156 börn á aldrinum eins til sex ára. Fjöldi barna stýrist af aldurssamsetningu barnahópsins á hverri deild. Gert er ráð fyrir um 40-42 stöðugildum og að fjöldi starfsfólks gæti orðið 50-55 samtímis vegna hlutastarfa, sérkennslu og afleysinga.

Í starfsemi Hagasteins verður lögð áhersla á jákvæðan aga, hæglæti, umhverfismennt, barnasáttmálann, Réttindaskóla UNICEF og vellíðan, með það að markmiði að skapa öflugt náms- og starfsumhverfi. Sýn leikskólans er faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Leikskólinn rís við Naustagötu í ört vaxandi hverfi þar sem þörf er á auknu leikskólaplássi og því mikilvæg viðbót við þjónustu við fjölskyldur í Hagahverfi.

Heimild: Akureyri.is