Home Fréttir Í fréttum Ör­ygg­is­gæsla fyrir ósak­hæfa rís á Hólms­heiði

Ör­ygg­is­gæsla fyrir ósak­hæfa rís á Hólms­heiði

40
0
Fangelsi er á Hólmsheiði. Öryggisgæsla verður reist í nágrenninu. RÚV / Ragnar Visage

Ríkið hefur samið við Reykjavíkurborg um að fá lóð á Hólmsheiði. Þar á að reisa öryggisgæslustað fyrir ósakhæfa einstaklinga sem framið hafa alvarleg afbrot. Þar verður einnig hægt að vista brotamenn sem hafa verið sakfelldir en ekki þykir líklegt að fangelsisrefsing beri árangur.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu samkomulag um lóðina í fyrradag. Þar rís gæsla fyrir allt að sautján einstaklinga. Að auki verða þar skrifstofur Miðstöðvar um öryggisráðstafanir.

Heimild: Ruv.is