Home Fréttir Í fréttum 18.05.2026 Rimaskóli – Innanhússfrágangur áfangi 1

18.05.2026 Rimaskóli – Innanhússfrágangur áfangi 1

97
0
Rimaskóli Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Rimaskóli – Innanhússfrágangur áfangi 1, útboð nr. 16298.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: Um er að ræða niðurrif og endurnýjun á loftaklæðningu, gólfefni, loftræstingu og málun á inniveggjum. Skólinn er byggður í áföngum og er áfangi 1 kennsluálma. Rimaskóli er staðsettur í Grafvarvogi við Rósarima 11, 112 Reykjavík.

Verkefnið er skipt upp í eftirfarandi hluta:
hluti 1 – Loftræstikerfi
hluti 2 – Innanhússfrágangur

Áætluð lok framkvæmdatíma: 30. október 2026.

Vettvangsskoðun : Rimaskóla, Rósarima 11, 112 Reykjavík : Mánudaginn 4. maí 2026, kl. 10:00. 

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:30: þann 29. apríl 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 18. maí 2026.