
Á ráðstefnu tryggingafyrirtækisins Sjóvár á dögunum kynnti félagið til sögunnar nýja tegund trygginga fyrir verklegar framkvæmdir. Heiður Huld Hreiðarsdóttir forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar segir í samtali við Morgunblaðið að með þessari nýjung sé stigið mikilvægt skref í átt að því að bæta tryggingavernd fasteigna.
„Það hvílir lagaskylda á húseigendum að brunatryggja allar húseignir. Þá er einnig átt við nýbyggingar og hús í endurbótum sem t.d. er verið að stækka og laga. Í öllum þessum tilvikum ertu skyldugur til að kaupa viðbótarbrunatryggingu á endurbæturnar því hefðbundið brunabótamat nær ekki til þeirra,“ útskýrir Heiður.
Heimild: Mbl.is











