Home Fréttir Í fréttum Hvetja ungt fólk til að eltast við draumana sína

Hvetja ungt fólk til að eltast við draumana sína

47
0
Andri Þór Bergmann og Arngrímur Egill Gunnarsson eru stofnendur Garðfix. Ljósmynd: Samsett

Garðfix byrjaði sem einstaklingsmiðað garðþjónustufyrirtæki árið 2024 en í dag þjónustar það einnig sveitarfélög, fyrirtæki og stór húsfélög.

Garðþjónustufyrirtækið Garðfix sér fram á að tvöfalda bæði veltu og fjárfestingu í nýjum slátturróbotum í sumar miðað við sama tíma í fyrra. Fyrirtækið er nú á sínu þriðja rekstrarári og sinnir fjölda verkefna fyrir einstaklinga, húsfélög og sveitarfélög.

Garðfix var stofnað árið 2024 af tveimur ungum drengjum á menntaskólaaldri en það eru þeir Andri Þór Bergmann og Arngrímur Egill Gunnarsson.

Arngrímur segir í samtali við Viðskiptablaðið að þeir hafi fengið mjög jákvæðar viðtökur og að allir þeir viðskiptavinir sem nýttu sér þjónustu fyrirtækisins á fyrsta ári séu enn með þeim í dag.

„Það er eitthvað sem við erum mjög stoltir af og stór hluti af nýju viðskiptavinum okkar kom líka í gegnum meðmæli frá fjölskyldum og vinum þeirra sem voru með okkur í byrjun. Það segir okkur að við séum að gera eitthvað rétt.“

Hann segir að þeir séu nú í fullum undirbúningi fyrir sumarið þrátt fyrir snjóþunga vortíð en húsfélög vilja oft vera tilbúin með sláttinn um leið og snjórinn fer.

„Til að byrja með var þetta meira einstaklingsmiðuð þjónusta en nú höfum við verið að slá stór og þekkt almenningssvæði á Suðurlandi. Við vorum til dæmis að slá við Höfða í fyrra og verðum aftur með það svæði í ár.“

Arngrímur bætir við að róbotarnir séu nú komnir á 30 af 59 golfvöllum landsins, eða um helming af öllum golfvöllum Íslands. „Við höfum verið að setja upp og þjónusta róbotana á golfvöllum og erum komin mun framarlega en til dæmis Norðurlöndin þegar kemur að þeirri golfvallarþjónustu.“

Félagarnir eru báðir að stunda hagfræðinám við Háskólann í Reykjavík og segir Arngrímur að það hafi hjálpað þeim við rekstur fyrirtækisins. Þeir telja einnig að það sé mikilvægt fyrir ungt fólk að vera óhrætt við að eltast við draumana sína.

„Ef þú ert ungur þá hefur þú líka nægan tíma til að koma með hugmyndir og vera duglegur og ef fyrsta hugmyndin gengur ekki upp þá ferð þú bara yfir í næstu. Garðfix byrjaði bara sem frumkvöðlaverkefni og við vildum bara sjá hvort þetta gæti orðið að einhverju. Við lærðum svo heilmikið á leiðinni og höfum tekið á móti öllum áskorunum.“

Heimild: Vb.is