
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Gísli H. Guðmundsson, framkvæmdastjóri byggingasviðs Ístaks, undirrituðu samning um innanhússfrágang og stýringu framkvæmda í meðferðarkjarna nýs Landspítala 31. mars.
Vottar fyrir hönd NLSH voru Árni Kristjánsson staðarverkfræðingur og Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs.
Samningurinn er á milli NLSH ohf. og Ístaks hf. og nær til framkvæmda frá kjallara (K2) upp á 4. hæð, alls um 55.000 fermetra. Hann felur einnig í sér heildarstjórn og samhæfingu verksins á þessum svæðum, að því er heilbrigðisráðuneytið greinir frá í tilkynningu.
Einn stærsti samningur verkefnisins
„Um er að ræða einn stærsta samning verkefnisins við Hringbraut til þessa, að verðmæti 15,9 milljarðar króna með virðisaukaskatti. Ístak þekkir vel til verkefnisins en fyrirtækið sá áður um þakfrágang meðferðarkjarnans.
Framkvæmdir við efri hæðir hússins eru einnig í fullum gangi. Fyrir um ári var samið við ÞG verk ehf. um innri frágang á 5. og 6. hæð, þar sem legudeildir spítalans verða. Sú vinna hefur gengið vel og sjást greinilegar breytingar á rýminu með hverri viku. Flatarmál þessara hæða er nær 15.000 fermetrar,“ segir í tilkynningunni.
Mikil umsvif í útboðum
Þá kemur fram að mikil umsvif séu nú í útboðum hjá NLSH. Nýlega hafi verið opnuð útboð vegna lagna og loftræsingar á neðri hæðum og standi yfir auglýsing útboðs fyrir rafkerfi á sömu svæðum. Þá sé einnig hafið útboðsferli fyrir tæki og búnað, þar á meðal sjúkrastokka og sjúkrakallkerfi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir sem nú standa yfir taki allt að þrjú ár.
Samhliða þessu er unnið að undirbúningi útboðs fyrir innanhússfrágang í rannsóknahúsi spítalans. Stefnt er að því að loka byggingunni í haust og að nýr verktaki geti hafið innivinnu strax að loknum núverandi verkþáttum. Rannsóknahúsið verður um 20.000 fermetrar að stærð og hannað fyrir sérhæfða rannsóknastarfsemi, að því er ráðuneytið greinir frá.
Heimild: Mbl.is











