Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk og skal verkinu vera að fullu lokið í nóvember.
Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.
Þá er gert ráð fyrir nýjum borgargarði með gróðri, göngu- og hjólastígum og góðri aðstöðu til útivistar og samveru ofan á stokknum.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að frestur til að skila inn tilboðum sé til klukkan 14 þriðjudaginn 14. apríl og verða útboðsgögn aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign.

Vilja bæta umferð í nærliggjandi byggð
„Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.
Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana.
Eitt af markmiðunum er að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð,“ segir í tilkynningunni.

Hljóðvist og loftgæði bætt á löngum kafla
Þar er jafnframt snert á hvaða áhrif Sæbrautarstokkur komi til með að hafa á höfuðborgarsvæðið og er t.a.m. nefnt greiðar samgöngur fyrir akandi og aukið umferðaröryggi með frjálsu flæði yfir langan kafla Reykjanesbrautar með afnámi gatnamóta við Súðarvog og mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg.

Einnig yrðu greiðari samgöngur fyrir gangandi og hjólandi og aukið umferðaröryggi með tengingum ofan á stokki milli borgarhluta austan og vestan við Sæbraut sem og greiðar samgöngur fyrir Borgarlínu og Strætó með mislægri þverun við Sæbraut á sérakreinum.
Aukinheldur yrðu hljóðvist og loftgæði bætt á löngum kafla og bættar tengingar almenningssamgangna sem og fyrir gangandi og hjólandi sem myndu stuðla að auknu hlutfalli ferða vistvænna samgöngumáta sem er þáttur í að mæta loftlagsmarkmiðum stjórnvalda.

Heimild: Mbl.is












