Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Hagahverfi – Jarðvinna – 1. áfangi 2026.

Opnun útboðs: Hagahverfi – Jarðvinna – 1. áfangi 2026.

314
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

Úr fundargerð Bæjarráðs Hornafjarðar þann 10.03.2026

Framkvæmd – Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur
Sveitarfélagið hefur leitað tilboða í verkið Framkvæmd – Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur.
Kostnaðaráætlun verkefnis var 109.162.000 kr.
Eftirfarandi tilboð bárust sveitarfélaginu:
1. Austurverk – 102.255.500 kr., þ.e. 93,67% af kostnaðaráætlun
2. Rósaberg – 65.404.316 kr., þ.e. 59,91% af kostnaðaráætlun
3. Jökulfell – 63.137.613 kr., þ.e. 57,84% af kostnaðaráætlun
4. Skaftverk – 85.410.273 kr., þ.e. 78,24% af kostnaðaráætlun
5. Jökulfell frávik – 60.129.513 kr., þ.e. 55,05% af kostnaðaráætlun
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja tilboð Jökulfells að upphæð 63.137.613 kr.
Frávikstilboð Jökulfells ehf. uppfyllir ekki ákveðin skilyrði sem gerð eru til verksins og telst því ekki gilt.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Jökulfell ehf. sem átti lægsta gilda tilboðið að fjárhæð 63.137.613 kr.

Útboð Hagahverfi jarðvinna.pdf