Þau sem búa á herbergjasambýlum á vegum Reykjavíkurborgar hafa mörg hver beðið lengi eftir að fá sitt eigið heimili. Það var því gleðistund í gær, þegar íbúðakjarninn á Sólvallagötu 79 var formlega opnaður en þaðan flytur fólk af þremur sambýlum sem rekin hafa verið af borginni.
Í samstarfi við Félagsbústaði hefur Reykjavíkurborg tekið 21 nýjan íbúðakjarna til notkunar frá árinu 2018. Á sama tíma hefur herbergjasambýlum smám saman verið lokað.
Átta fengu afhenta lykla að nýjum séríbúðum í íbúakjarnanum Sólvallagötu í gær.
Heimild: Ruv.is












