Stuðlar höfðu ekki fengið útgefið öryggis- og lokaúttektarvottorð á viðbyggingu sem hýsti neyðarvistunina vegna annmarka á brunavörnum.
Samt var viðbyggingin tekin í notkun þó svo að skilyrði fyrir heimilaðri notkun samkvæmt lögum væru ekki uppfyllt og notkun því óheimil. Samkvæmt lögum átti byggingarfulltrúi að fyrirskipa lokun.
Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á brunanum sem varð í október 2024.
Sautján ára drengur lést í brunanum og starfsmaður slasaðist. Í dag eru tíu komnir með réttarstöðu sakbornings vegna málsins.
HMS telur að unnt hefði verið að draga úr þeirri hættu sem skapaðist og koma í veg fyrir mannslát, hefðu brunavarnir verið virkar í samræmi við brunahönnun.
Byggingarfulltrúi átti að fyrirskipa lokun
Í skýrslu HMS segir að í lögum sé skýrt kveðið á um að reynist öryggi mannvirkis ábótavant við öryggis- eða lokaúttekt skuli byggingarfulltrúi fyrirskipa lokun og koma í veg
fyrir að mannvirki verði tekið í notkun án úrbóta
Í ljósi þess að ekki hafði verið gefið út öryggis- og lokaúttektarvottorð af byggingarfulltrúa, bar hann áfram ábyrgð á eftirliti með viðbyggingunni þar sem eldsvoðinn kom upp í.
Skilyrði ekki uppfyllt
Í skýrslunni segir enn fremur að eldvarnareftirlit Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti í samræmi við reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit.
„Frá árinu 2022 var eldvarnareftirliti ekki sinnt með reglubundnum staðarskoðun heldur einungis í formi gagnaöflunar og eigin eftirlits af hálfu Ríkiseigna, þrátt fyrir að skilyrði fyrir slíkri tilhögun væru ekki uppfyllt.“
Þó er tekið fram í skýrslunni að viðbragðs SHS þegar eldsvoðinn kom upp hafi verið hratt og vel skipulagt. Slökkvistarfið sjálft hafi því gengið vel og var viðbragðið innan þeirra viðmiða sem mælt er fyrir um í brunavarnaáætlun slökkviliðsins.

Margt sem fór úrskeiðis
HMS telur ljóst að þeir annmarkar sem komu í ljós við rannsóknina á brunanum varða ekki einn afmarkaðan þátt, heldur samspil margra þátta sem eiga að tryggja virkar brunavarnir.
„Það er mat HMS að brunavarnir í mannvirkjum af þessu tagi séu ekki einungis tæknilegt viðfangsefni heldur hluti af heildstæðu öryggiskerfi þar sem ábyrgð, eftirlit og dagleg framkvæmd verða að vinna saman til að draga úr áhættunni.“
Draga verði lærdóm af eldsvoðanum.
Heimild: Mbl.is












