Kópavogsbær óskar eftir tilboði í verkið: Naustavör 13 – Stígagerð og lagnir utan lóðar.
Framkvæmdin felst í stígagerð, lagningu fráveitulagna og yfirborðsfrágangs við Naustavör. Núverandi skólplögn liggur í gegnum nýja lóð við Naustavör 13 og felst verkið meðal annars í því að færa lögnina út fyrir ný lóðarmörk.
Framkvæma á göngu- og hjólastíg á milli Vesturvarar 12 og Naustavarar 66. Jafnframt skal tengja núverandi stíg vestan Naustavarar 11 við nýjan göngustíg.
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu Tendsign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt í gegnum kerfið.
| Útboðsgögn afhent: | 17.03.2026 kl. 00:00 |
| Skilafrestur | 28.04.2026 kl. 10:00 |
| Opnun tilboða: | 28.04.2026 kl. 10:01 |
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.












