Home Fréttir Í fréttum Verktaki krefur ríkið um 850 milljónir vegna hjúkrunarheimilis á Hornafirði

Verktaki krefur ríkið um 850 milljónir vegna hjúkrunarheimilis á Hornafirði

1032
0
Góður gangur hefur verið í framkvæmdum við Skjólgarð undanfarið. RÚV – Rúnar Snær Reynisson

Húsheild-Hyrna krefur íslenska ríkið um 850 milljónir í bætur vegna tjóns sem fyrirtækið hafi orðið fyrir við byggingu hjúkrunarheimilis á Hornafirði.

Byggingarfyrirtækið Húsheild-Hyrna hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst bóta vegna kostnaðar og tafa við byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði. Krafan hljóðar upp á 850 milljónir auk dráttarvaxta.

Átök um hvort uppfæra þyrfti hönnunargögn

Á Hornafirði er verið að stækka hjúkrunarheimilið Skjólgarð þannig að allir geti verið í sérherbergi. Við hjúkrunarheimilið stendur nú ókláruð nýbygging og einnig á eftir að endurnýja eldra húsnæði.

Framkvæmdir gengu hægt og átök voru á milli verktakans og Framkvæmdasýslu ríkiseigna og taldi verktakinn að hönnunargögnum eða teikningum væri ábótavant.

Í október rifti framkvæmdasýslan samningum við verktakann Húsheild-Hyrnu vegna tafa og samdi við Ístak um að klára verkið. Húsheild Hyrna sagði þá í yfirlýsingu að tafirnar hefðu ekki verið fyrirtækinu að kenna. Þær mætti rekja til vinnubragða hjá framkvæmdasýslunni.

Hönnunargögn hefðu verið ófullnægjandi og ókláruð þegar verkið var boðið út. Það hefði valdið töfum og teikningarnar hefðu þá enn ekki verið tilbúnar. Framkvæmdasýslan hefði hins vegar kennt fyrirtækinu um tafirnar, dregið háar tafabætur af greiðslum til húsheildar Hyrnu og hótað riftun. Það hefði sett verkið í uppnám og valdið enn frekara tjóni og töfum.

Nú hefur Húsheild-Hyrna stefnt ríkinu vegna tjóns sem fyrirtækið telur að rekja megi til lélegrar verkstjórnunar af hálfu Framkvæmdasýslu ríkiseigna. Samkvæmt heimildum fréttastofu krefst fyrirtækið 850 milljóna auk dráttarvaxta og verður krafan dómtekin á næstunni.

Ágætur gangur hefur verið í framkvæmdum við hjúkrunarheimilið undanfarið og er stefnt á að hægt verði að flytja þar inn eftir tvo og hálfan mánuð, eða í byrjun júní.

Heimild: Ruv.is