Home Fréttir Í fréttum Garðabær auglýsir útboð vegna niðurrifs hluta af Flataskóla

Garðabær auglýsir útboð vegna niðurrifs hluta af Flataskóla

98
0
Mynd: Garðapósturinn

Garðabær auglýsir um þessar mundir útboð sem varðar niðurrif hluta Flataskóla sem var byggður árunum 1958-1963 auk viðbyggingar við suðurálmu skólans.

Óskað er eftir tilboðum verktaka í að rífa hluta Flataskóla, steinsteypta byggingu alls um 1.170 fermetra. Sá hluti skólans sem fyrirhugað er að rífa var að mestu byggður á árunum 1958-1963, en þar er einnig viðbygging við suðurálmu sem var byggður á árunum 1992-1993.

Gert er ráð fyrir að verkið fari fram yfir sumarmánuðina og að því ljúki eigi síðar en 15. ágúst. Verkið skal unnið samkvæmt útboðsgögnum og verklýsingu.

Heimild: Garðapósturinn