Vinna við innanhússfrágang á legudeildum gengur vel. Samhliða er unnið við uppsetningu veggja, pípulagnir, loftræsingu og raflagnir. Verktaki er byrjaður að flísaleggja baðherbergi. Það styttist í að uppsetning kerfislofta hefjist og einnig dúklögn gólfa.
„Nú er unnið í tveimur húsum að vestanverðu, sem kölluð eru stangir eitt og tvö. Í stöngum fjögur og fimm er ílögn í gólf langt komin og verið er að setja upp veggi og áætluð verklok eru í janúar 2028,“ segir Sigurjón Sigurjónsson staðarverkfræðingur NLSH.

Ístak, sem mun stýra hliðarsamningum frá kjallara upp á fjórðu hæð, hóf ílagnarvinnu á þriðju hæð í stöng 1 í febrúar og þar með eru verktakar byrjaðir á innanhússvinnu í öllum meðferðarkjarnanum.
„Áætluð er áframhaldandi vinna við ílögn, áður en uppsetning innveggja hefst. Á næstu vikum munu verktakar tæknikerfa hefja vinnu í húsinu og eykst þá jafnt og þétt fjöldi starfsmanna upp í allt að 500 á þessu ári. Verkið er stórt og verkáætlunin spannar nokkur ár,“ segir Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.
Heimild: NLSH.is












