
Nýir eigendur Valhallar, Sjálfstæðishússins við Háaleitisbraut 1, hafa óskað eftir því við skipulagsyfirvöld að fá leyfi til að byggja inndregna hæð ofan á húsið.
Einnig óska þeir eftir leyfi til að hótelstarfsemi verði í húsinu. Samkvæmt aðalskipulagi er það leyfilegt. Hins vegar þarf að breyta deiliskipulagi ef húsinu verður breytt í hótel.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur tekur jákvætt í útlitsbreytingar, sem felast í inndreginni þakhæð og frágröfnum kjallara, svo framarlega sem þær eru unnar í sem mestri sátt við byggingarlist hinnar upprunalegu byggingar eins og lýst er í Byggðakönnun.
Heimild: Mbl.is











