Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 19.03.2026 Suðuræð í Hafnarfirði – 2a. Áfangi – Lækjarskóli – Ljósatröð og...

19.03.2026 Suðuræð í Hafnarfirði – 2a. Áfangi – Lækjarskóli – Ljósatröð og byggingu lokahúss við Ljósatröð 6

77
0
RÚV / Ragnar Visage

Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í verkefnið: VEU-2602-0022 Suðuræð í Hafnarfirði – 2a. Áfangi – Lækjarskóli – Ljósatröð og byggingu lokahúss við Ljósatröð 6

Verkið snýr að lagningu suðuræðar hitaveitu í Hafnarfirði. Lögð verður DN800 mm einangruð stállögn frá núverandi enda Suðuræðar við íþróttahús Lækjarskóla suður fyrir Ljósatröð. Einnig verða lagðar DN500 lögn milli nýrrar DN800 og eldri DN500, DN400 tenging í lokahús, DN350 lögn frá lokahúsi að núverandi lögn við Lækjargötu og Ø63 PEX heimæðalagnir. Hluti af verkinu eru þrennar götuþveranir, Sólvangsvegur, Lækjargata og Ljósatröð.

Veitur munu útvega hitaveituefni stærra en DN200 en verktaki skal útvega allt annað svo sem: hitaveituefni DN200 og minna, fyllingarefni, malbik, merkingar ofl..

Byggja skal nýtt lokahús staðsett við Ljósutröð 6, 220 Hafnarfirði fyrir Veitulagnir sem mun sjá um að dreifa vatni úr Suðuræð 1 í aðliggjandi dreifikerfi. Stærð lóðar er 172,0 m2, lokahúsið er 73 m2 þar sem aðalburðarvirki hússins er steinsteypt. Byggingin verður grunduð á fyllingu sem stendur á burðarhæfum botni.

Burðarvirki byggingar er úr járnbentri steinsteypu, þ.e. sökklar, botnplata og veggir. Byggingin er flokkuð í notkunarflokk 1 skv. Byggingarreglugerð. Húsið er einangrað að utan, klætt sléttu áli í dökkum lit með falskri læsingu. Gluggar og hurðir verða í samlita klæðningu. Þakið á byggingunni verður staðsteypt, með 200 mm einangrun og tvöföldum bræddum pappa. Þakið er með einhalla upp á 1:40.

Helstu magntölur eru:

  • Hitaveitulagnir 825m
  • Gröftur 168m3
  • Söndun 750 m3
  • Malbik 780 m2

Sjá nánari upplýsingar um verkið í útboðsgögnum.

Útboðsgögn afhent: 26.02.2026 kl. 12:00
Skilafrestur 19.03.2026 kl. 14:00
Opnun tilboða: 19.03.2026 kl. 14:00

Sjá frekar.