Home Fréttir Í fréttum Kaupa Topp­stöðina með Eigna­byggð

Kaupa Topp­stöðina með Eigna­byggð

31
0
Hilmar segist vilja gera Elliðaárdalinn að betri áningarstað en hann er í dag. Ljósmynd: Samsett

Toppstöðin og Eignabyggð áforma að framkvæmdum að útilífsmiðstöðvar við gömlu rafstöðina í Elliðaárdalnum ljúki innan tveggja ára.

Kaupsamningur um sölu á eigninni Rafstöðvarvegur 4, Toppstöðin, var undirritaður í byrjun mánaðar en Reykjavíkurborg hafði auglýst húsnæðið til sölu í júní 2024. Kaupandi er félagið Toppstöðin ehf. undir leiðsögn Hilmars Ingimundarsonar.

Borgarráð samþykkti að ganga til samningaviðræðna við félagið sem var hæstbjóðandi í útboðinu á Toppstöðinni. Kauptilboð hafði hins vegar verið lagt fram með fyrirvara um lánsfjármögnun, leigusamninga við leigutaka og samþykki Fiskistofu á framkvæmdum.

Toppstöðin ehf. hefur nú lokið fjármögnun og greitt 420 milljóna króna tilboðið að fullu eftir undirritun á kaupsamningi.

Eignabyggð hefur keypt sig inn í félagið og mun sjá um uppbyggingu og endurbætur á húsinu ásamt utanumhaldi en Eignabyggð eignaðist einnig eignir í Álfabakka 12 í fyrra, þar sem Sambíóin voru áður til húsa og mun hýsa höfuðstöðvar Nova.

Forhönnun Toppstöðvarinnar verður þá jafnframt unnin af Nordic – Office of Architecture.

Hilmar Ingimundarson, sem er einnig formaður Klifurfélags Reykjavíkur, segir í samtali við Viðskiptablaðið að með kaupunum ljúki óvissu félagsins um húsnæðisaðstöðu en meginhugmyndin á bakvið kaupin var að breyta Toppstöðinni í útilífsmiðstöð.

„Þegar ég tók við sem formaður Klifurfélags Reykjavíkur árið 2018 tók ég við mikilli húsnæðiskrísu. Við höfðum verið með tíu ára leigusamning í Ármúla sem var að renna út en það tók okkur líka eitt ár að flytja inn í húsnæðið þegar við fengum það afhent 2012.“

Innan bygginarinnar er gert ráð fyrir rýmum fyrir Klifurfélag Reykjavíkur, Hjólabrettafélag Reykjavíkur og Hjólafélags Reykjavíkur.

Hann segir að félagið hafi tekið þátt í verkefni Reykjavíkurborgar, Íþróttastefna til 2030, og vann hörðum höndum að því að hefja viðræður við borgina um að finna nýja aðstöðu.

„Vinur minn Hallgrímur Þór Sigurðsson arkitekt flytur svo heim eftir að hafa búið erlendis og starfað sem arkitekt í 20 ár. Við förum svo og hjólum niður í Elliðaárdal og þegar við komum að Toppstöðinni þá spyr ég hann hvort það væri ekki frábært að breyta þessu húsi í klifurhús.“

Toppstöðin Café
© Aðsend mynd

Hilmar hafði þá starfað bæði á Íslandi og í London og dag einn var hann á hlaupum í Hyde Park með útvarpsþátt Bylgjunnar í eyrunum. „Þá heyri ég að Óli Jón Hertervig, sem var með eignarumsjón fyrir Reykjavíkurborg, var að auglýsa eftir samstarfsaðilum fyrir þetta hús.“

Boltinn byrjar að rúlla

Hilmar fékk þá nokkra aðila með sér í verkefnið en það voru Logi Ólafsson, Hallgrímur Þór Sigurðsson og faðir Hilmars, Ingimundur Sigurpálsson. Þeir byrjuðu að funda með Reykjavíkurborg og var viljayfirlýsing undirrituð vorið 2020.

Tillaga að skipulagi á lóðinni.

Það komu þó upp nokkur vandamál en til að byrja með var asbest í húsinu og gekk erfiðlega að tryggja einkafjármögnun þar sem húsið var ekki í þeirra eigu.

„Svo um verslunarmannahelgina 2024 þá var ákveðið að selja húsið og fór það í útboð, sem við tókum þátt í. Við buðum 420 milljónir í húsnæðið og unnum það útboð. Það var reyndar áhugaverð umræða því það var sagt að Landsvirkjun hefði verið með hæsta tilboðið. Þeir voru hins vegar ekki með hæsta tilboðið í húsið, heldur vildu þeir fá meira en bara húsið og stærra rými í dalnum.“

Hilmar þurfti einnig að fá leyfi hjá Fiskistofu þar sem um var að ræða fyrirhugaðar framkvæmdir við hliðina á laxveiðiá. Toppstöðin og Eignabyggð hafa þá unnið að hönnun og skipulagi undanfarna mánuði en Eignabyggð sagði nýlega að framkvæmdir gætu klárast á innan við tveimur árum.

„Hugmyndin var fyrst og fremst að leysa húsnæðisvandann hjá Klifurfélaginu en öll umgjörð á klifri á Íslandi hefur margfaldast á undanförnum árum. Við erum nú komin með yfir 3.500 iðkendur og við viljum vera með góða útivistarmiðstöð í Elliðarárdalnum þar sem almenningur hefur aðgengi að góðum stað.“

Heimild: Vb.is