Halldór Benjamín telur líklegt að verkefnið verði sett í forgrunn hjá Heimum. Gert er ráð fyrir allt að 400 stæðum neðanjarðar.
Heimar fasteignafélag undirbúa nú í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa uppbyggingu á suðursvæði Smáralindar þar sem í dag eru bílastæði. Gert er ráð fyrir blöndu af skrifstofu- og atvinnuhúsnæði auk 80 íbúða.
„Við gerum ráð fyrir því að yfir nokkurra ára tímabil munum við fullnýta byggingarrétti sem eru einhvers staðar á bilinu 22-23 þúsund fermetrar,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima á uppgjörsfundi á fimmtudaginn.
Hann benti á að til samanburðar sé Smáralindin 63 þúsund fermetrar.
„Þetta er ekki einhver óravegur í framtíðina. Mér finnst líklegt að þetta verði það verkefni sem við setjum nánast í forgrunn. Við munum reyna að hefjast handa í þessu verkefni á næstu misserum,“ sagði Halldór Benjamín.
Bílastæði færð í kjallara
Í dag eru 439 yfirborðs bílastæði á umræddum lóðum við Silfursmára. Gert er ráð fyrir allt að 400 stæðum neðanjarðar í bílakjallara og allt að 50 stæðum ofanjarðar í skipulagstillögunni.
Í fjárfestakynningu Heima segir að heimilt verði að byggja allt að 20 þúsund fermetrar neðanjarðar á tveimur hæðum þar sem bílastæði verða sem þjóna munu bæði nýbyggingum og Smáralind.
Heimar lögðu umrædda lóð inn í Klasa við kaup á þriðjungshlut í fasteignaþróunarfélaginu árið 2022 og eiga kauprétt á öllu verslunar- og atvinnuhúsnæði á lóðinni að þróun lokinni.

Stefnir í annað metár hjá Smáralind
Halldór Benjamín fór yfir nokkur þróunarverkefni fasteignafélagsins á téðum fundi og sagði að fyrirhuguð uppbygging við Smáralind væri í uppáhaldi af þeim.
„Ég hef styrkst í þeirri trú hér á undanförnum misserum að Smáralindasvæðið, að Smárinn, er að verða einn eftirsóttasti kjarni landsins.”
Hann talaði um að undanfarið hafi verið náð fram umbyltingu í Smáralindinni, þar á meðal með opnun mathallarinnar Garðsins, fjölgun bíósala í Smárabíó. Auk þess minntist hann á nýja atvinnuhúsnæðið að Silfursmára 12 sem þegar er búið að fylla.
„Aðsóknarmet í Smáralind var slegið á síðasta ári og við sjáum að hvernig þetta ár byrjar þá gerum við ráð fyrir að árið 2026 verði aftur metár í Smáralind. Það er ekki bara mathöllin sem er að keyra þetta heldur eru heimsóknir í Smáralind að vaxa það mikið að velta allra rekstraraðila er að vaxa umtalsvert á ári. Þess vegna er þetta miklu meira en bara einhver mathöll.“

Heimild: Vb.is












