Home Fréttir Í fréttum Íslendingarnir farnir út úr byggingu þess sem átti að verða „eitt flottasta...

Íslendingarnir farnir út úr byggingu þess sem átti að verða „eitt flottasta hótel“ landsins

23
0
Tölvugerð teikning af inngangi hótelsins. Höfði Lodge

Hótel Höfði Lodge sem á að rísa nærri Grenivík er komið alfarið í eigu Ilidor S.a.r.l. eftir að Björgvin Björgvinsson og Jóhann Hafstein seldu sig út úr fyrirtækinu. Stefnt er að opnun í haust, fjórum árum seinna en til stóð í upphafi.

Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafsteinsson hafa selt rúmlega helmingshlut sinn í Höfða Lodge, lúxushóteli sem á að opna á Þengilhöfða við Grenivík í haust. Þeir voru í forystu fyrir verkefninu allt frá því það var kynnt síðla árs 2020 þar til þeir seldu sinn hlut í byrjun þessa mánaðar.

Kaupandinn er Ilidor S.a.r.l. sem hefur átt tæplega helmingshlut á móti þeim.

Markmiðin með byggingu og rekstri hótelsins voru háleit. Það á að vera fimm stjörnu lúxushótel fyrir efnað fólk allsstaðar að úr heiminum.

„Hérna er að rísa bara eitt flottasta hótel á landinu, ef ekki bara það flottasta, hérna á Grenivík,” sagði Björgvin í viðtali við RÚV í mars 2021. Í fyrrasumar var byggingin orðin tveimur árum á eftir áætlun og þá sagði Björgvin að verkið hefði reynst flóknara en talið var og kostnaður farið fram úr áætlun.

Stefnt er að því að opna hótelið í haust, fjórum árum seinna en upphaflega var stefnt að.

Björgvin og Jóhann seldu sinn hlut í því en fengu á móti eignarhlut í Viking Heliskiing og Scanic Guide sem þeir áttu með Höfða Lodge en eignast nú að fullu.

Heimild: Ruv.is