Home Fréttir Í fréttum Ný göngubrú milli Barnaspítala og meðferðarkjarna sett upp

Ný göngubrú milli Barnaspítala og meðferðarkjarna sett upp

17
0
Mynd: NLSH.is

Þann 10.febrúar hófust framkvæmdir við uppsetningu nýrrar göngubrúar sem liggur á milli Barnaspítala og meðferðarkjarna.

Áætlað er að fullnaðarfrágangur við brúnna fari fram samhliða innanhúsframkvæmdum við meðferðarkjarna og brúin tekin í notkun að þeim loknum. Brúin er í mikilli nálægð við inngang Barnaspítalans og er gætt ýtrasta öryggis gangandi vegfaranda á meðan framkvæmdum stendur.

Verktaki er Eykt , og verkið er unnið í nánu samstarfi við Landspítala.

„Uppsetningin hefur farið fram í mikilli nálægð við Barnaspítala og óhjákvæmilega valdið truflun á inngangi og auknum hávaða á meðan á framkvæmdum stendur.

Við þökkum starfsfólki, skjólstæðingum og gestum Barnaspítala fyrir sýnda þolinmæði og skilning á þessu tímabili,“ segir Kristinn Jakobsson verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is