Home Fréttir Í fréttum Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu

Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu

16
0
Ólafur Guðmundsson og Kristinn Sv. Helgason

Samgöngumálin verða án efa eitt af stóru málunum í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Samgöngukerfi borgarinnar ræður ekki lengur við núverandi umferðarmagn, og miklar tafir, sérstaklega á álagstíma, valda íbúum og fyrirtækjum háum kostnaði og óþægindum.

Þetta er að stórum hluta heimatilbúinn vandi þar sem borgaryfirvöld hafa verulega vanrækt síðustu tvo áratugi nauðsynlegar framkvæmdir til að auka umferðarflæði.

Á sama tíma gerir hið háa skatta-, útgjalda- og skuldsetningarstig borgarinnar það að verkum að það er óskynsamlegt að leggja út í fjármagnsfrekar og rekstrarlega áhættusamar samgönguframkvæmdir eins og borgarlínuna.

Heimild: Mbl.is